Hugarheimurinn

Sigrún hugsar

22.05.2007 09:50:47 / sigrunw

Á ekki að vera sumar

Já ég segi nú ekki annað á ekki að vera komið sumar ég hélt það allavegana en nei þegar að mín fer á fætur í morgunn þá er bara allt á kafi í snjó ég meina það sko. Dóttir mín er úti að leika sér í snjógalla og læti þetta er ekki normallt það var sól í gær og gott veður en núna er bara eins og ég sagði allt á kafi í snjó.

 

En já mín er á leiðinni í bæinn á morgunn verð yfir helgina það verður stuð ætla að hitta elvu og ingibjörgu á föstudaginn leifa börnunum að leika sér saman þá geta þeir félagar kinnst alvöru frekju :D. Já hún dóttir mín er sko mjög ákveðinn ung dama og lætur ekkert yfir sig ganga. Svo er ég nú að fara í útskriftarveislu og verð svo leinigestur í fermingu með tengdó kem með þeim suður. Já og svo eftir þessa ferð þá líður nú ekki að löngu að maður komi aftur nei nei ég verð kominn heim til mín á mánudegi og svo á föstudeginum þá förum við aftur suður og þá saman familý og verðum í nokkra daga. Svo þið þarna fyrir sunnan fáið aldeilis nóg af mér haha:lol:..

 

 

Nóg í bili kveð að sinni sigrún 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 14:31:56 / sigrunw

Já já á maður að blogga eitthvað hérna inni jú langt síðan að ég var hérna síðast. Humm hvað á ég að segja ykkur ég hef bara ekki hugmynd það gerist svo sem ekki margt hjá mér er heima á daginn og heima á kvöldinn:). Jú það er nú verið að henda niður einu stikki palli hérna hjá mér stefán og pabbi hans eru búnir að vera svo helvíti duglegir núna eru þeir bara að klára dæmið það á nefnilega að koma sandkassi ofaní pallinn og verið að dunda sér við að hanna hann og gera og þegar að hann er klár þá er ég bara kominn með þennan dírindispall upp á tíu metra hvorki meira né minna.

 

Jú við Kolla skelltum okkur í smá bæjarferð um þarsíðustu helgi og var það heljarinnar fjör gistum hjá elvu og jón þóri takk fyrir það. Jú það var verslað smá einn jakki og sonna eitthvað smátterí í viðbót og svo skelltum við okkur á djammið á laugardaginn það var fínt þó svo að ég sé ekki mikið fyrir að djamma í rvk fynnst það ekkert svkalega gaman allt of mikið fólk fyrir mig.

Jú svo fórum við karlinn nú að djamma núna síðasta laugardag skelltum okkkur á krúsina á ball það var heví gaman. nema hvað það var ekki gaman að koma heim var með barnapíu hjá mér sem að gersamlega fór yfir strikið hún lagði heimili mitt í rúst og stal frá mér heilum helling það var ekki gaman hún eiðilagði eitt stikki gameboy tölvu og stal fullt af snyrtidóti bjór og netkortinu úr tölvunni minni og svo var hún búinn að nota helling af dóti frá mér sem að var hér um allt hús. Já hún fær sko ekki að passa meira fyrir mig þessi dama hún sem að ætlaði að passa fyrir mig í sumar nei ég þarf að finna mér nýja:^).

 

En já eigum við ekki að láta þetta gott heita í bili verð nú að vera duglegri við þetta bið að heilsa ykkur í bili kv sigrún 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 12:41:54 / sigrunw

Fólk er fífl

Já þið lásuð rétt fólk er fífl hvað er að þessu liði sem að var að kvarta undan því að loka þurfti vesturlandsveginum vegna banaslys sem að var þar í gær það var fólk sem að reyndi að keyra í gegnum vetvanginn og svo var fullt af fólki sem að hringdi í lögregluna og kvartaði og kveinaði og var einfaldlega með dónaskap vegna þess að þeir voru að ransaka vettvanginn og ástæður fyrir slysinu hvað er málið maður bara spyr sig er fólk virkilega svona sjálfselskt að það gat ekki beðið í smá stund og sínt hinum látna og hans fjölskyldu smá virðingu ojbara á svona fólk.

En já að allt öðrum málum ég er búinn í prófunum jey núna getur maður loksins farið í gott jólaskap og slappað af en jú við erum að koma suður ætlum að keyra á fimmtudag þegar að tengdó er búinn í vinnu en jú hún ætlar að koma með okkur svo að það verður fínt þá fær maður föstudag og laugardag til að finna jólagjöf fyrir karlinn haha en annar er barasta allt gott að frétta hérna af bænum jólasveinninn kom í nótt með fínar gjafir ég fékk reindar ekkert hlít að hafa farið of seint að sofa :( 

Bið að heilsa út í heim kveðja Sigrún

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 18:23:49 / sigrunw

undirbúningur

Já nú er ég að undirbúa mig fyrir prófin mín en þau eru þann 11 og 12 desember hlakka ekki mikið til það er svo asskoti lagt síðan að maður sat á skólabekk og þurfti að sitja í prófi en þetta á örugglega eftir að ganga sæmilega hefur allavegana gert það hingað til er búinn að fá ágætis einkannir á þessari önn meðal annar tvær 10 og eina 9 svo að það er sæmilega gott þarf bara að standa mig í lokaprófunum. En annað að frétta við fórum í gær niður í bæ þar sem að það var verið að kveikja á jólatrénu í bænum og það var mikil gleði í gangi jólasveinarnir mættu og gerðu mikla lukku hjá ungum sem öldunum og að venju dreifðu þeir nammi í liðið. Jú svo er nú farið að stittast í ferðina suður en það verður þann 15 des og ætlum við meira að segja að skella okkur á jólaball fyrir sunnan með mömmu pabba og systkinum mínum og börnum þeirra sem að er nú ekkert lítill hópur þar sem að allir eiga 2 börn og systir mín er með eitt auka barn sem sagt 9 stykki og svo foreldarar gætum haldið okkar eigið jólaball hahaha:haha:.

En já það er best að halda áfram að læra þíðir ekkert að slá slöku við núna bið að heilsa út í heiminn kv Sigrún

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 15:08:04 / sigrunw

laufabrauð

Jújú hvað haldiði mín var barasta að skera út laufabrauð í gær enginn smá dugnaður vorum með 160 kökur það á aldeilis að snæða sér um jólinn svo var bara boðið í mat á eftir vorum hjá Maju ömmu á ísafirði hún var með þessa dásamlegu máltíð jú það var bara skellt í hangikjöt og læti það var bara eins og jólinn væru kominn nema að það var ekkert skraut og maður ekki búinn að opna neina pakka annars var þetta mjög fínn dagur.Já nú er maður svona að huga að því hvort að það eigi nú ekki að fara skella upp einhverju jóla skrauti seríum og svona ætli maður dembi sér ekki bara í það um næstu helgi og svo erum við að koma suður þann 15 kíkja aðeins í búðir og svona reina að finna sér einhver föt og jólagjöf handa karlinum.

Ég hef nú ekki mikið meir að segja að sinni enda gerist ekki svo mikið hjá mér er heima læri og sinni börnunum svo kveð að sinni sigrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 16:20:53 / sigrunw

kominn tími á blogg

Já heil og sæl verið þið jújú ég er ennþá á lífi eða svo gott sem er búinn að vera að drekkja mér í lærdómi jú nú fara prófinn að skella á og maður þarf nú víst að læra eitthvað fyrir þau ef að maður ætla að vita eitthvað.:S já það er nú svo sem ekki mikið að frétta af okkur hérna jú mín tók sig til og lét karlinn breita öllu í stofunni var kominn með leið og vantaði einhverja tilbreitingu maður þarf nú víst að gera það öðru hvoru og jú ég er nú farinn að huga aðeins að jólunum er byrjuð að gera jólakor og jú ég er nú búinn að kaupa allar jólagjafir nema við eigum eftir að bæta í hjá krökkunum og svo á ég Stefán eftir enda er það endalaus hausverkur að velja handa honum ekki að hann er alltaf ánægður með það sem að ég gef honum.

Já að allt öðru erum byrjuð að venja Sólveigu Birnu af bleyju hún er rosalega dugleg enda er hún svo montinn þegar að henni tekst að pissa og kúka í koppinn að það skín úr henni montið svo sér maður bara hvað henni finnst gott að vera með enga bleyju svo að ég vona bara að þetta fari að koma hjá henni. Já annnars er orðið rosalega kallt hjá okkur það er alveg rosalegt frost úti maður verður að klæða sig alveg rosalega vel þegar að maður fer út svo að maður frjósi ekki:^).

Jú við stefnum að því að koma suður þann 15 desember og vera yfir þá helgi ætla að klára að kaupa jólagjafirnar sem að eftir eru og hitta familíuna því að við ætlum ekkert að koma yfir jólin svo að vonandi getum við hitt einhverja þá og gert eitthvað skemmtilegt svo sjáumst bið að heilsa í bili.

over and out sw

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 21:36:51 / sigrunw

gaman að gera endilega

Hérna hafið þið eina skemmtun svona ef að ykkur leiðist endilega gefið ykkur tíma og góða skemmtun.

1.Miðnafnið þitt?
2.Aldur?
3.Single or taken?
4.Uppáhalds mynd?
5.Hvaða lag minnir þig á mig?
6.Uppáhalds hljómsveit?
7.Tattoo eða göt?
8.Þekkjumst við persónulega?
9.Hver er tilgangurinn með lífinu?
10.Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
11.Myndiru þaga yfir leindarmáli ef að það skipti mig máli?
12.Besta minninginn þín um okkur?
13.Myndir þú gefa mér nýra?
14.Segðu eitthvað skrítið um þig?
15.Myndiru hugsa um mig ef að ég væri veik?
16.Getum við hisst og bakað köku?
17.Hefurðu heirt kjaftasögu um mig nýlega?
18.Finnst þér ég góð manneskja?
19.Myndiru keyra með mig hringinn í kringum landið?
20.Finnst þér ég aðlaðandi?
21.Hverju myndiru vilja breyta í fari mínu?
22.Í hverju sefurðu?
23.Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu bara til að chilla?
24.Ef að ég ætti einn dag ólifaðann hvað myndum við gera?
25.Hvenær hittiru eða sást mig síðast?
26.Hvað heitir bílinn minn?



Jæja vonandi skemmtiru þér vel við að dudda þetta ég veit að ég á eftir að hafa gaman af að lesa það sem að þú skrifar sjáumst sigrún

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 22:49:10 / sigrunw

Laugardagur

Já komiði sæl og blessuð nú er enn einn laugardagurinn að renna sitt skeið þeim næsta ætla ég að eiða í borginni en já mín kemur á föstudaginn næsta hlakka mikið til sérstaklega þá til að kíkja á litla nýja prinsinn hann Þórð gefa honum og mömmu hans knús þau eru hetjur búið að vera þeim frekar erfitt en allt er gott sem að endar vel eða svo er sagt verður maður ekki að trúa því en já dagurinn í dag var viðburðaríkur fórum inn á ísó að hjálpa til við að úrbeina og hakka niður eitt stikki naut takk fyrir pennt gekk nú bara helvíti vel það voru allir svo vel saman stilltir að þetta gekk barasta eins og klukka en já svo fékk mín nú hugmynd í gær og það var að taka fataskápana úr herberginu hjá Aðalsteini og setja einn inn á bað og hina tvo inn í aukaherbergi hjá okkur sem að er notað svona sem leikherbergi og jú mín rak karlinn áfram og fór að tæma skápana svo að það var ekki aftur snúið eins og þið vitið að þegar að ég fæ flugu í höfuðið þá framkvæmi ég svo að núna er allt á öðrum endanum ég var reindar að ljúka við að mála fyrri umferð þurfit nefnilega að mála á bakvið skápana svo að strumpurinn kúrir hjá okkur svo er stefnt á að ljúka verkinu á morgunn mála aðra umferð og raða svo upp á nýtt í herbergið hjá strumpi hugsa bara að þetta eigi eftir að koma mjög vel út. Já svo smá svona mont en hún Sólveig Birna mín er farinn að tala svo mikið að fólk verður bara hissa þegar að það hittir hana og tala nú ekki um þegar að maður segir þeim hvað hún er gömul hún segir meira að segja Aðalsteinn og svo finnst henni frændi sinn hann Baldur svo skemmtilegur að hún náttúrulega segir Baldur labbar á eftir honum um allt og hermir allt eftir honum alveg dásamlegt var að passa hann á fimmtudag og við fórum út í göngutúr svo var hann að skvetta í pollum og hún varð að gera alveg eins og hann ótrúlega krúttað:D  en já nóg af því svo að ég segi bara bless bless og hlakka til að hitta ykkur um næstu helgi 

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 22:31:10 / sigrunw

Prins

Já ég verð bara að deila því með ykkur en hún systir mín var að eignast dreng áðan og ég bara get ekki beðið eftir að komast suður og kíkja á hann segi bara elsku María mín óli Tara og Guðjón til hamingju með drenginn og hlakka til að koma til ykkar og knúsa prinsinn og auðvitað Guðjón og þig maría mín þú ert algjör hetja
kveðja stolt litla systir 

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 13:07:58 / sigrunw

Vetur

Já ég held barsta að það sé kominn vetur það er barasta byrjað að snjóa hjá mér búið að snjóa frá því í gær með smá stoppi svo að það er spurning um hvort að það verði hægt að fara með börinin út í sleðaferð í vikunni ekki þætti þeim það slæmt minn maður bíður sko spenntur eftir að geta farið út með sleðann sinn. Ekki hægt að segja að foreldararnir séu alveg jafn spenntir ekki það að mér líki ekki snjór heldur mætti hann bara koma aðeins seinna svona eins og bara í desember það væri flott.Jú fréttir segið þið ekki er nú neitt mikið um þær þar sem að maður geri ekki svo mikið annað er að vera heima og sinna því sem að þar er að sinna jú skólinn gengur svona semí vel og svo er nú verið að skipuleggja ferð suður tengdó var að bjóða mér og ungunum að koma með þeim suður fyrstuhelgina í nóv ég er nú barast að hugsa um að skella mér með þeim gaman að fara suður og svo verður nú systir mín búinn að eiga svo að það er frábært kíkja á litla krílið. Svo höfum þetta nóg í bili kveðja úr snjónum sjáumst í nóv


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 15:31:48 / sigrunw

Ritgerð

Já ritgerð ég er að ströglast við að gera eina slíka vá hvað maður getur verið tómur eða kanski bara allt of langt síðan maður gerði eina slíka:haha: ég held að það sé ekki vitlaust hjá mér en vá hvað er samt búið að breita hvernig maður á að gera þetta það eru komnar alskonar leiðbeiningar sem að maður þarf að fara eftir og skrifa fyrirsögnir við allt saman og þetta er bara alveg að fara með mig þetta er allt eitthvað svo ruglandi afhverju má þetta ekki bara vera eins og það var byrjað á inngangi og svo meginmál og lokaorð einfalt og fínt nei núna eru 7 flokkar sem að maður þarf að skipta ritgerðinni í og mér finnst barasta eins og að ég sé alltaf að skrifa það sama þetta er bull. jæjæ búinn að pústa um þessa vitleisu ætla að reina að halda áfram yfir og út sigrún


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 18:52:59 / sigrunw

skóli

Já nú er maður á fullu að reina að klára öll verkefni sem að maður þarf að skila svo að maður fái að taka próf en það er sem sagt ein ritgerð í íslensku nokkur verkefni og svo sagnfræði sem að er sko ekki mitt vá hvað ég skil það ekki en svo er það enskan og þar er nú bara að taka smásögupróf sem að er nú ekki mikið mál svo að nú er bara að taka höndum saman og kíla á þetta :D annars er nú ekki mikið að frétta hér á bæ nema að Stefán og pabbi hans eru að rífa upp garðinn minn og setja niður undirstöður fyrir pallinn minn sem að ég á að fá næsta sumar en þeim fanst best að gera þetta núna svo að skjólveggurinn fjúki ekki í vetur væri nú ekki til í það skal ég segja ykkur. Já meir í fréttum segið þið ég er að bíða eftir að systir mín ungi út barninu sem að hún ber undir belti en það á að setja hana af stað á fimmtudaginn í næstu viku svo að það er nú ekki svo langt að bíða veður gaman að fá nýja frænku eða frænda og svo er ég nú að hugsa um það hvort að maður komist ekki suður að hitta hana vonandi verður ekki langt í það ætla að reina að komast með tengdó mánarmótin nóv des.

Jú svo erum við hjónin búinn að plana útlandaferð á næsta ári ætlum að fara til Dk með börnin fara í lególand og dýragarðinn og tívolí það verður sko gaman ætlum að byrja að leggja til hliðar í janúar erum nú samt kominn með smá summu þökk sé frábærum foreldrum já mamma og pabbi takk þið eruð frábær. Jæja ætla að láta þetta duga í bili over and out

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 10:47:20 / sigrunw

5 ár

Já heil og sæl langt síðan maður hefur verið hérna jú við erum nú búinn að gera ýmislegt á þessum tíma sem að ég var í burtu meðal annars þá skruppum við suður og héldum þar eitt stikki barnaafmæli já hann Aðalsteinn minn er orðinn 5 ára stór strákur og hann hélt hvorki meira né minna en 3 afmæli já eins og ég var búinn að segja þá héldum við eitt hjá mömmu og pabba í mosó og var það haldið þann 1 okt og svo þegar að við komum heim þá hélt hann fyrst afmæli fyrir vini sína og svo ættingja svo að það er nú aldeilis búið að vera nóg að gera á þessum bæ í veisluhaldi en já hann átti sem sagt afmæli í gær til hamingju með það snúðurinn minn:o. En já við skeltum okkur suður og var það bara aldeils fínt alltaf gott að gera eitthvað nýtt við gerðum svo sem ekki mikið annað en að slappa af og það var nú bara mjög gott að geta það því að það var búið að vera svo mikið að gera hjá stefáni í vinnu að okkur veitti ekkert af þessu að vera saman öll og slappa af.

Já annars er bara allt gott að frétta af okkur hérna það er nú orðið ansi kalt hjá okkur það snjóaðið í fyrrinótt og svo er nú búið að vera ansi hvasst hjá okkur svo að það er nú ekki mikið farið út rétt stokkið í bílinn og ekki meir. Já talandi um að sonurinn sé orðinn stór haldiði ekki að hann hafi bara farið í skólann í gær já hann er byrjaður að fara í grunnskólann á að gera það svona sirka einu sinni í viku er þá frá átta til hálf tólf og þau eru að vinna verkefni með sex ára bekknum þetta er alveg hrikalega spennandi fyrir hann svo í morgunn þá neitaði hann bara að fara í leikskólann sagði bara nei ég er byrjaður í grunnskólanum.

en látum þetta duga í bili heirumst kveðja að vestan

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 12:25:03 / sigrunw

arg

já arg var búinn að skrifa hér heilann helling og já viti menn það hvarf alveg týpist loksins þegar að maður nennir að blogga þá hvað hverfur allt þetta er alveg glatað en ég er nú ekki að nenna að blogga þetta allt aftur svo sjáumst síðar þegar að mín nennir 

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 14:41:57 / sigrunw

Hreifa sig

Já nú held ég barasta að það sé komin tími á að losa sig við þessi kíló sem að maður nær sér alltaf í við barnsburð og nokkur auka líka held það bara jú mín er hætt að drekka gos og borða nammi og núna vantar bara að koma sér meira út að hreifa sig er ekki alveg nógu dugleg við það kanski vegna þess að maður hefur engann með sér sem að drífur mann áfram en markmiðið er að verða orðinn fitt næsta sumar svo að maður geti nú verið smá gella og vonandi verður það nú gott sumar þannig að þetta nýtist eitthvað :) .

En já eins og flesstir ættu að vita þá erum við að koma suður um næstu helgi eða þann 30 sept og verður það nú gaman ætlum að halda upp á afmælið hans Aðalsteins en hann verður 5 þann 10 okt svo að það á að leifa honum að halda afmæli fyrir ættingja fyrir sunnan og svo vorum við nú að hugsa um að hafa smá hitting fyrir vini sjáum hvernig það kemur út en annars bara yfir og út sigrún

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3